Þú ert hér

Velkomin á vefsíðu FFR


Félag forstöðumanna ríkisstofnana var stofnað árið 1986. Tilgangur þess samkvæmt lögum félagsins er að: 

  • efla kynni félagsmanna,
  • stuðla að samstarfi félagsmanna og stofnana eftir því sem við á,
  • vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna almennt, þar með talið kjaramálum þeirra,
  • vera tengiliður og samstarfsaðili við stjórnvöld varðandi gagnkvæm málefni félagsmanna og stofnana,
  • efla kynningu félagsmanna á stofnunum hvers annars,
  • stuðla að fræðslustarfi meðal félagsmanna.


Nýjustu fréttir

  • 09.05.2012 Fundur um netvá

    Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið og Póst- og fjarskiptastofnun héldu fund um netvá miðvikudaginn 9. maí kl. 9:00-11:00 á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík. Um 60 manns sóttu fundinn.

    Hægt er að skoða glærur fyrirlesara af fundinum hér að neðan:


  • 09.05.2012 Aðalfundur FFR 8. maí 2012
    Aðalfundur Félags forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) var haldinn á Grand Hótel 8. maí 2012. Dagskrá fundarins var með hefðbundnum hætti og hófst fundurinn með því að Magnús Guðmundsson formaður félagsins flutti stutt ávarp. Magnús Pétursson var fundarstjóri.
    Frá aðalfundi FFR 2012
  • 09.05.2012 Skýrsla fjármálaráðherra um vinnuumhverfi forstöðumanna ríkisstofnana

    Endanleg útgáfa af skýrslu fjármálaráðherra um vinnuumhverfi forstöðumanna ríkisstofnana er komin hér á vef FFR.

    Í marsmánuði 2011 skipaði fjármálaráðherra starfshóp til að fjalla um stöðu, starfsskilyrði og kjör forstöðumanna. Af hálfu Félags forstöðumanna ríkisstofnana voru tilnefnd í starfshópinn þau Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.


     


  • 09.05.2012 Fundur um Netvá 9. maí 2012, kl. 9:00

    Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið og Póst- og fjarskiptastofnun boða til fundar um netvá miðvikudaginn 9. maí kl. 9:00-11:00 á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík. Vinsamlega skráið þátttöku með því að senda tölvupóst á: erlabj@landsbokasafn.is


>>Smellið hér til að sjá yfirlit frétta og tilkynninga

Heimilisfang: Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Stillholti 16-18, 300 Akranesi - sími 430-9000
FFR á Facebook - In English
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is